Ljósvakaljóð 2009

Ljósvakaljóð er stuttmyndahátíð fyrir 15 - 25 ára. Hátíðin er haldin í fjórða skipti í ár og unnin í samstarfi við dvoted.net, Reykjavíkurborg, Zik Zak Filmworks og Norræna húsið.

Ljósvakaljóð 2009 verða nú haldin fimmtudaginn 5. nóvember í Norræna húsinu. Dagskráin hefst kl. 17:30 með umræðum með þekktum innlendum kvikmyndagerðarmönnum og svo Pitch-keppni þar sem fólk getur viðrað kvikmyndahugmyndir sínar og fengið ráðleggingar fagaðila.

Sjálf stuttmyndakeppnin fer svo fram kl. 20 um kvöldið. Valdar verða 6-10 stuttmyndir úr innsendum myndum til að keppa um aðalverðlaunin, 50.000 kr. peningaverðlaun. Aðgangur ókeypis.